Nokkrar Kríur sem ég
heklaði fyrir jólin, allar úr Kunstgarni á nál nr. 4,5 og 5.
Eldað - Bakað - Heklað
“Crochet gives me an inner peace that I treasure each and every day.” – Judith Ferrett
Friday, January 4, 2013
Sunday, December 2, 2012
Jóladagatal
Ég ákvað að
búa til dagatal fyrir Nikulás því mér fannst ekkert henta honum af því sem var
í boði í verslunum, en hugmyndina fékk ég á Pinterest.
Hann er með svo mikla sjóræningjadellu, byrjaði fyrst með
Söngvaborg í kringum eins árs aldurinn en þá var hann svo sjúklega hræddur við
eitt lagið sem sjóræningi syngur.
Í dag er hann bara pínu hræddur við
sjóræningja en á móti mjög spenntur fyrir þeim. Ég fann fullkomið dót í Hagkaup
til að fylla í hólfin en sumir kallarnir eru aðeins of stórir og sums staðar
sést í smá sverð sem skiptir hann örugglega engu máli. Svo keypti ég blöðrur og
smá hlaup og fann fullkominn stað fyrir dagatalið en það fékk ekki lengi að hanga þar í
friði og er komið inní eldhús uppí hillu þar sem litlir fingur ná ekki í :)
Saturday, December 1, 2012
Súkkulaði jólasveinahúfur
Í dag var
jólaball í leikskólanum hans Nikulásar og allir foreldrar voru beðnir um að
koma með eitthvað á hlaðborðið, smákökur, kökur eða ávexti.
Ég sá þessa
hugmynd á Pinterest, ótrúlega einfalt og útkoman eru skemmtilegar
jólasveinahúfur :)
Nikulás hjálpaði mér að baka
Saturday, November 17, 2012
Vinkonu afmælismatarboðið 15.september
Grillaðar
kjúklingalundir með Coriandercoco sósu
Ég pantaði
sushi-ið hjá Tokyo sushi en laxatartarinn bjó ég til sjálf
Steikarsalat,
sama og þetta en ég prófaði í fyrsta skipti að nota Flank steik sem ég keypti í
kjötverslun
Ég bakaði
Funfetti köku, notaði hringamót til að skera út og setti þær í
barnamatarkrukkur og ofan á fór mars- og hindberjakrem. Auðvitað föndraði ég
sjálf allt skrautið :)
Vantar tvær
vinkonur á myndirnir sem komu aðeins seinna og gleymdist að taka mynd af :/
Thursday, November 15, 2012
Kjúklingur- Chorizo
Ég eldaði
súper einfaldan en súper ljúffengan kjúklingarétt fyrir fjölskylduna í kvöld.
Ég setti
kjúklingalæri í ofnskúffu, skar kartöflur í fernt og stráði yfir kjúklinginn. Svo
fór dash af olíu og ég nuddaði bitana og kartöflurnar, skar niður rauðlauk
gróft og chorizo pyslu í sneiðar og svo í fernt og stráði yfir. Að lokum
kryddaði ég með salti, pipar, oreganó og rifnum appelsínubörk og skellti inní
ofn á 180 gráðir í klukkutíma.
Dásamlega gott :)
Wednesday, November 14, 2012
Fyrsta Krían mín :)
Ég er í
hópnum Handóðir heklarar á Facebook og þar gengur yfir algjört Kríu æði. Ég er
svo áhrifagjörn og nýbúin að vera í samhekli þannig að ég gat ekki annað en að smitast af þessari dásemd. En uppskriftina má finna í Þóru - heklbók.
Nýtt garn
var að lenda í garnversluninni Handprjón, garn sem tók 2 ár að fá að gerast viðskiptavinir og 6 mánuða bið eftir fyrstu sendingu. Geggjað merino ullar garn
sem var alveg tilvalið fyrir Kríuna mína, garnið heitir Madelinetosh en ég keypti einnig dokku af gráu Abuelita - Merino Lace til að hafa það röndótt :)
Ég keypti
garnið á mánudaginn og byrjaði að hekla úr því um kvöldið en eftir cirka 3
umferðir festist garnið þannig að ég losaði aðeins úr miðjunni. Fljótlega
festist það aftur og ég losaði aðeins meir úr miðjunni og svo festist það aftur og þá reyndi ég að ýta því út hinu megin og þá var skaðinn skeður, þvílíka
flækjan, OMG !
Ég klippti
á garnið og notaði endann sem lá utan á dokkunni og hélt áfram að hekla en það truflaði mig samt mikið
að sjá þessa lausu garnaflækjuklessu í miðjunni.
Ég brunaði
inní Hafnarfjörð í Handprjón daginn eftir í hádeginu og það tók okkur Ernu,
starfsmann Handprjón um klukkutíma að byrjað að leysa flækjuna og auðvitað
þurfti ég að rekja upp það sem ég var byrjuð á, ég varð síðan að bruna aftur í
vinnuna en fór aftur eftir vinnu inní Hafnarfjörð og hélt áfram ásamt Ernu.
Vorum 2
tíma að leysa flækjuna og ég verð að viðurkenna að á tímabili var ég við það að
henda garn flækjunni og kaupa mér nýtt. En það var vegna þolinmæði Ernu að við
kláruðum að leysa 380 metra flækju.
Ótrúlega
stolt af mér að halda þetta út og þakklát Ernu fyrir hjálpina ! :)
Sunday, November 11, 2012
Fyrsta heklaða sjal/klútur :)
Núna þegar
fer að kólna er svo notalegt að vera með eitthvað hlýtt um hálsinn. Ég féll
fyrir þessu sjali fyrir löngu síðan á blogginu hennar Elínar, keypti mér garnið
7 bræður niðrí Handprjón síðasta mánudag og kláraði að hekla sjalið/klútinn í
gær. Fljótlegt og fallegt :)
Subscribe to:
Posts (Atom)