Ég ákvað að
búa til dagatal fyrir Nikulás því mér fannst ekkert henta honum af því sem var
í boði í verslunum, en hugmyndina fékk ég á Pinterest.
Hann er með svo mikla sjóræningjadellu, byrjaði fyrst með
Söngvaborg í kringum eins árs aldurinn en þá var hann svo sjúklega hræddur við
eitt lagið sem sjóræningi syngur.
Í dag er hann bara pínu hræddur við
sjóræningja en á móti mjög spenntur fyrir þeim. Ég fann fullkomið dót í Hagkaup
til að fylla í hólfin en sumir kallarnir eru aðeins of stórir og sums staðar
sést í smá sverð sem skiptir hann örugglega engu máli. Svo keypti ég blöðrur og
smá hlaup og fann fullkominn stað fyrir dagatalið en það fékk ekki lengi að hanga þar í
friði og er komið inní eldhús uppí hillu þar sem litlir fingur ná ekki í :)