“Crochet gives me an inner peace that I treasure each and every day.” – Judith Ferrett
Wednesday, November 30, 2011
Sunday, November 6, 2011
Nikulás 1 árs !
Ég
ákvað með mjög stuttum fyrirvara hönnunina á eins árs afmælisköku Nikulásar. Ég
var búin að æfa mig eins og vindurinn að gera alls konar bollakökur eins og sjá
má hér á blogginu. En einhverra hluta vegna ákvað ég að henda mér í djúpu
laugina og búa til sykurmassa og sykurmassaskreytingar.
Uppskriftin af kökunni sjálfri fékk ég
á vef mommur.is
Beljuþemað er mjög táknrænt fyrir mig og Nikulás því hann neitar að hætta á brjósti. Ég er s.s stærri og breiðari beljan og hann litli kálfurinn. Það var ekki pláss fyrir mig á kökunni þannig að Nikulás litli kálfurinn minn fékk nóg pláss.
Beljuþemað er mjög táknrænt fyrir mig og Nikulás því hann neitar að hætta á brjósti. Ég er s.s stærri og breiðari beljan og hann litli kálfurinn. Það var ekki pláss fyrir mig á kökunni þannig að Nikulás litli kálfurinn minn fékk nóg pláss.
Ég keypti ýmislegt í Allt í köku og
Kosti til að gera sykurmassa skreytingarnar en grasið gerði ég með smjörkremi.
Negrakossa Kóngulær
Keypti 12
negrakossa niðrí Nettó á 200 kr, jább 200 kr, stakk apollo lakkrísreimum í
hliðarnar og augun keypti ég í Kosti en í staðinn er hægt að nota hvíta
súkkulaðidropa og teikna augasteininn með matarlit.
Á neðstu
myndinni eru vanillubollakökur,
bjó til föndrið úr
skrapp pappír sem ég keypti í Garðheimum og gataði með sérstökum gatara og
límdi svo tannstöngla aftan á og stakk í bollakökurnar :)
Wednesday, November 2, 2011
Tikka Masala á 20 mínútum
Ég tætti niður heilan
kjúkling, hitaði olíu á pönnu og steikti lauk og bætti svo saman við engifer,
hvítlauk og chilli. Skellti kjúklingnum saman við, krukku af Tikka Masala sósu,
dós af tómötum og skvettu af rjóma og hitaði saman í nokkrar mín.
Bjó til kóríanderpestó, sauð brún hýðis hrísgrjón og hitaði naan brauð...
Bjó til kóríanderpestó, sauð brún hýðis hrísgrjón og hitaði naan brauð...
Sunday, October 23, 2011
Salat með parmaskinku
~Blandað salat~
2 perur, skornar í litla báta og grillaðar
8 sneiðar parmaskinka
Mozzarella
Ristaðar pekan hnetur
~Sinneps-salatsósa~
1 hluti vínedik
2 hlutar góð olía
Grófkornasinnep
Ögn af sykri eða hunangi
Smá salt og pipar
Síðan eftir skapi blanda ég ýmist, tómötum, grilluðum aspas, portobello sveppum eða hverju sem er :)
Saturday, October 8, 2011
Friday, October 7, 2011
Súkkulaði hindberjabollakökur með hindberjakremi til heiðurs bleiku slaufunnar
Súkkulaði hindberja bollakökur
125 gr smjörlíki
125 gr púðursykur
2 egg
125 hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
3 msk kakó (t.d. Cadbury’s)
1 dolla af hindberjajógúrt
Frosin hindber, mulin
Aðferð
Hitið
ofnin í 180°.
Þeytið smjörlíkið saman við púðursykurinn og svo eggin,
eitt í einu.
Blandið þurrefnunum saman við og strax á eftir jógúrtinu.
Þeytið í ca 1-2 mín eða þangað til allt er vel blandað,
setjið svo í form og bakið ca 25 mín.
Krem
80 gr smjörlíki
2,5 dl flórsykur
1/3 bolli hindber
1 tsk vanilludropar
smá dash af ferskum sítrónusafa gerir punktinn yfir i-ið.
Subscribe to:
Posts (Atom)












