Ég man ekki alveg hver kveikjan var að
kökupinnargerð, sennilega bara það að mig langaði að gera eitthvað annað en að
baka "köku".
Uppskriftin
er einföld:
1
Betty Crocker Djöflaköku- eða súkkulaðikökumix
400 g
súkklaðikrem frá Betty Crocker
Hvítir
súkkulaðidropar frá Nóa Síríus
Aðferð
Bakið
Betty Crocker blönduna samkvæmt leiðbeiningum. Þegar kakan er orðin köld er hún
tekin í sundur og mulin niður í skál. Kreminu er síðan bætt saman við með
gaffli. Besta útkoman verður þegar blandan er kramin í höndunum, nauðsynlegt að
vera í hönskum. Blandan á að vera þannig að hún festist ekki við hendurnar og
ekki of þurr. Ef farið er nákvæmlega eftir uppskriftinni ætti hún að vera
fullkomin.
1.
Mótið kúlur, setjið á smjörpappír og kælið í kæli í ca. 15-30 mínútur eða í
frysti í 5 mínútur.
2.
Kúlurnar eru teknar út, endanum á kökupinna dýft í súkkulaði og stungið í
miðjuna á kúlunni. Kælið aftur þar til súkkulaðið á pinnanum er storknað.
3.
Súkkulaði er brætt við meðalhita, litað með súkkulaðilitum og
síðan notað til að hjúpa pinnana.
4.
Skreytið að vild.
A
ReplyDeletesjal
is one of FinaSjalars passions total we have over a hundred.