“Crochet gives me an inner peace that I treasure each and every day.” – Judith Ferrett

Monday, August 6, 2012

Uglu pottaleppar


Ég var alveg ákveðin eftir að hafa heklað fyrsta pottaleppinn að ég myndi ekki hekla annan. Það gekk eitthvað svo erfiðlega að hekla kantinn en með heppni tókst mér að gera þetta rétt. Eins þurfti ég að prófa mig áfram með augun þangað til ég var sátt.

Enn, svo féll ég fyrir túrkís bláa litnum og ákvað að hekla annan og hekla aðeins lausara og viti menn þá varð síðasta sporið sýnilegt og þegar ég heklaði kantinn varð þetta ekkert mál, ákvað að eiga þessa tvo og svo er ég búin að hekla þriðja sem ég gaf tengdamömmu :)

Keypti þessa uppskrift á Etsy frá Kate Alvis.


2 comments:

  1. Þessir eru frekar sætir.
    Mig langar soldið að skella mér á þessa uppskrift.

    ReplyDelete
  2. Já alveg ótrúlega sætir og eitt af því sem vantaði í mitt eldhús :)

    ReplyDelete