Eitt af því sem ég elska við haustin eru nýslátruðu
lömbin og verða þau því oft fyrir valinu hjá okkur á sunnudögum. Í gær fórum
við í seinna fallinu að versla því húsmóðirin gat ekki hætt að hekla... ;)
Nikulás litli sofnaði í bílnum rétt áður en við ætluðum í heimsókn og þess
vegna brunuðum við heim og ég stökk inn og kryddaði lambið meðan Nikulás svaf
og auðvitað var pabbinn hjá honum á meðan.
Ég skar niður tvo lauka, gulrætur, sellerí og hvítlauk
og setti í botninn á pottinum. Skar djúpar raufar í lærið og stakk hvítlauk sem
ég var búin að skera gróft niður. Því næst nuddaði ég lambið vel með góðri
olíu, kryddaði með salti, sítrónupipar, rósarpipar og bezt á lambið. Svo fékk
lærið að dúsa í pottinum með lokinu á eldhúsborðinu í tvo tíma meðan við
skruppum í heimsókn.
Þegar við komum heim tók á móti okkur unaðsleg lykt sem
sveimaði um alla íbúðina.
Ég byrja alltaf á því að loka kjöti og skellti því inn
í 200° heitan ofn í 20 mín, svo lækkaði ég hitann niðrí 150° og lærið (2,6 kg) fékk
að dúsa áfram í 80 mín.
Ég á því miður ekki fleiri myndir, vorum orðin svo svöng,
þessi verður bara að duga !
Með þessu bar ég fram grófar, stórar franskar, gular
baunir, rauðbeður, grænmeti úr pottinum, ferskt salat og 1 líter af brúnni
sósu, ég notaði soðið úr pottinum ásamt helmingnum af grænmetinu sem ég skellti
í matvinnsluvél, það er einnig hægt að nota töfrasprota.
Það er nógur afgangur fyrir kvöldið í kvöld, allt
úthugsað svo húsmóðirin geti heklað með CAL hópnum sínum eftir vinnu í dag ;)